Um Landnámssetur

Í Landnámssetri bjóðum við uppá margs konar afþreyingu og skemmtun auk þess sem á staðnum er góður veitingastaður.

 

Landnámssýningin - sýning um Landnám Íslands, 30 mín hljóðleiðsögn á tíu tungumálum og barnarás. 

 

Egilssögusýningin - sýning um Egils sögu, 30 mín hljóðleiðsögn á tíu tungumálum og barnarás.

 

Egilsslóð - Leiðsögn á merka sögustaði Egilssögu. Lengd ferðar eftir samkomulagi.

 

Ratleikur, skemmtileg útivera, létt ganga, þrautir og græskulaust gaman.

 

Leiksýningar á sögulofti. 

 

Sjá sýningaskrá.

 

Fyrir eða eftir leiksýningar er tilvalið að fá sér girnilegan kvöldverð í veitingahúsi Landnámsseturs. Sjá leikhústilboð.

  

Hlaðhönd - Gjafavöruverslun

 

Fundaraðstaða er bæði á Sögulofti og í veitingahúsinu.

 

Veisluaðstaða er í skála og í veitingahúsi. Í veitingahúsinu eru tveir salir, Arinstofa og Hvíti salur sem rúma samtals allt að 100 manns.

 

Í hádeginu er á boðstólum hollustusúpa, nýbakað brauð og góð, holl og næringarík salöt, tilvalið fyrir vinnandi fólk eða þá sem eiga leið um Borgarnes. Spyrjið um afsláttarkortið sem veitir 10% afslátt og 10. hverja máltíð fría.